Fákshólar og Tommi Snorra fórum saman í 5 daga þjálfunarferð í síðustu viku með 62 hross.
Nýtt video af Krapa frá Ásholti litförótt skjóttum stóðhesti
Stæling frá Skagaströnd gengur með folald fyrir Þöll
Stæling frá Skagaströnd gengur nú með folald fyrir Þöll frá Heiði og faðirinn er Feykir frá Háholti sem varð annar á HM Austurríki í 5 vetra flokki Stóðhesta.
Hér er Stæling með folaldi sínu frá í vor undan Alvari frá Nýjabæ.
Sónarskoðað
Þeir Húni og Siggi Óli vinna B flokk í Hafnarfirði
Þeir Siggi og Húni gerðu góðan túr á Gæðingaveislu Íshesta og Sörla í hafrarfirði um síðustu helgi. Gerðu sér lítið fyrir og unnu B flokkinn með 8,70. Í töltinu urðu þeir Siggi og Svali í þriðja sæti.
Tígull jafnar við Feyki í 5 vetra flokki
Tígull frá Kleiva og Feykir frá Háholti eru með sömu aðaleinkunn, 8,38 eftir síðari umferð kynbótadóma í flokki 5 vetra stóðhesta.
Tígull hlýtur fyrsta sætið og er það sennilega vegan þess að hann er hærri á aukastöfum.
Feykir hlýtur því annað sætið í flokki 5 vetra stóðhesta á HM 2011.
Engar breytingar urðu á dómi Feykis á þessari seinni sýningu og lýkur þátttöku með 8,66 fyrir byggingu og 8,19 fyrir hæfileika. Tígull, sem kemur frá Noregi, hækkaði hins vegar úr 5,0 í 6,0 fyrir skeið og er með 8,61 fyrir byggingu og 8,23 fyrir hæfileika. Í þriðja sæti flokksins varð þýskfæddur hestur Ísleifur vom Lipperthof með 8,13 í aðaleinkunn.
Feykir efstur fyrir yfirlit á HM
Feykir frá Háholti og Sigurður Óli eru efstir í 5 vetra flokki stóðhesta á Heimsleikum í Austurríki.
Eins og áður var sagt frá þá hækkaði Feykir fyrir sköpulag úr 8,50 í 8,66 og í dag hlaut hann 8,19 fyrir kosti og lækkar því úr 8,29 í 8,19 fyrir kosti. Ástæðan er að brokk og stökk lækkar um hálfan.
IS2006188028 Feykir frá Háholti
Örmerki: 352206000036896
Litur: 1520 Rauður/milli- stjörnótt
Ræktandi: Margrét Steinþórsdóttir
Eigandi: Birna Káradóttir, Fákshólar ehf
F.: IS1990184730 Andvari frá Ey I
Ff.: IS1986186055 Orri frá Þúfu
Fm.: IS1981284726 Leira frá Ey I
M.: IS1997288025 Efling frá Háholti
Mf.: IS1992188801 Hamur frá Þóroddsstöðum
Mm.: IS1977288174 Katla frá Hrepphólum
Mál (cm): 145 – 133 – 140 – 68 – 146 – 37 – 50 – 44 – 6,7 – 31,5 – 19,5
Hófa mál: V.fr.: 9,6 – V.a.: 8,1
Sköpulag: 8,0 – 9,0 – 8,0 – 9,0 – 8,5 – 8,0 – 9,0 – 8,0 = 8,66
Hæfileikar: 8,5 – 8,0 – 7,0 – 8,5 – 8,5 – 8,5 – 8,5 = 8,19
Aðaleinkunn: 8,38
Hægt tölt: 8,5 Hægt stökk: 8,0
Sýnandi: Sigurður Óli Kristinsson
Guðmunda Ellen og Alvar sigruðu unglingaflokkinn á Stórmóti Geysis.
Þau Guðmunda Ellen og Alvar frá Nýjabæ voru í öðru sæti inn í úrslit á Stórmóti Geysis sem haldið var nú um Verslunarmannahelgina en unnu síðan úrslitin með 8,51
Feykir hækkaði fyrir sköpulag á HM
Feykir frá Háholti hækkaði úr 8,50 í 8,66 fyrir sköpulag á Heimsmeistaramótinu sem nú fer fram í Austurríki.
Byggingardómar fóru fram í dag en reiðdómurinn fer fram á miðvikudag.
Feykir hækkaði úr 8,5 í 9,0 fyrir háls og hófa en lækkaði fyrir bak úr 8,5 í 8,0.
Það verður spennandi að fylgjast með þeim félögunum á miðvikudaginn,
Alvar og Guðmunda gera það gott á Íslandsmóti.
Alvar og Guðmunda tóku þátt í fjórgangi og tölti á Íslandsmótinu sem haldið er á Suðurnesjunum. Í fjórgangi komust þau í B úrslit og enduðum síðan í 8. sæti. Síðan eru þau í A úrslitum í tölti sem fer fram kl 16:00 í dag.


