Velkomin á vefsíðu Fákshóla
Fákshólar er nýbýli í eigu hjónanna Ellerts Vigfússonar og Jóhönnu Sigríðar Njálsdóttur, staðsett í Ásahreppi á Suðurlandi um 85 km frá Reykjavík.
Árið 2008 var byggt nýtt hesthús sem rúmar 40 hesta í eins hesta 6 fermetra stíum. Einnig var byggð reiðskemma sem er 21m x 53m að stærð.
Að Fákshólum er stunduð hrossarækt, sala á hrossum, tamningar og þjálfun, umboðssala og fleira tengt hestamennsku.